UNNUR 2.0
Safnar köttum

The Hills have Eyes

2006-04-27 16:17  _Bíóiđ_

Ég sá The Hills Have Eyes síðasta sunnudagskvöld. Hún var töff en ekki jafn vel skrifuð og aðrar myndir úr nýju hryllingsklámbylgjunni. Ég hef ekki séð fyrri myndina en eftir að hafa séð þessa og lesið umsögn þar sem þessi útgáfa er borin saman við þá fyrri þá blóðlangar mig að sjá hana. Samkvæmt umsögninni, sem ég man ómögulega hvar er að finna, þá stillir eldri myndin ógeislavirku fjölskyldunni og þeirri geislavirku meira upp á móti hvorri annarri þannig að þær endurspegla tvær andstæðar myndir af amerísku samfélagi. Þetta finnst mér hljóma spennandi, auk þess sem mér fannst vanta sárlega upp á persónusköpun skrýmslanna, nokkuð sem var afskaplega vel gert í House of 1000 corpses og í Hostel. Þetta er að sjálfsögðu alger standard í eldri hryllingsmyndum en virðist hafa hætt að skipta jafn miklu máli einhverntíman á miðjum níunda áratugnum*. Þegar morðóð skrýmsli eru höfð algerlega persónuleikalaus verða þau í hausnum að manni bara að einhverskonar róbótum og þar með sljákkar all hressilega í þeirri von að einhverjir veikleikar þeirra muni verða þeim að falli og sömuleiðis óttast maður ekki að einhverjar tilteknar sadískar langanir einhvers sadíska skrýmslisins muni leiða eitthvað sérstaklega hræðilegt af sér. Beisiklý, upplifanin af myndinni verður mun flatari en hún hefði getað verið. Og til hvers að horfa á svona ógeðismyndir ef þær hræða mann ekki í almennilegt catharsis? Að lokum voru kynhlutverkin í myndinni nokkuð athyglisverð, konur drápu ekki** heldur voru drepnar eða fórnuðu sér fyrir aðra, og er þá hundstíkin meðtalin, á meðan að öll ofbeldisverk voru framin af karlkyns verum. Sem er ekki mjög hryllingsmyndalegt vegna þess að konan sem í örvæntingu sinni stígur út fyrir ramma kvenhlutverksins og verður einhverjum að bana er mjög klassískt og áhrifamikið hryllingsmyndaminni.

Eitt var þó virkilega sniðuglega framsett og það var hvernig illska skrýmslanna var í beinu samhengi við kjarnorkugeislunina sem þau höfðu fengið í arf. Því ljótari sem þau voru, því blóðþyrstari og sadískari voru þau. Það er hægt að hugsa vel og lengi um þennan punkt og ég á ábyggilega eftir að horfa eftir þessari pælingu í glápi framtíðarinnar.

*Varúð: hér fullyrði ég hluti byggt á eigin hryllingsmyndaglápi og því er ekki víst það sé neitt að marka mig. Kannski hef ég bara svona góðan smekk fyrir gömlum hryllingsmyndum.

**Jú, stúlkan skýtur skrýmslamanninn í lokin en þá hefur bróðir hennar þegar leikið hann svo illa að dauðinn einn bíður hans. Það mætti jafnvel kalla athafnir stúlkunnar séu líknandi þar sem hún bindur enda á dauðastríð vonda kallsins.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!