UNNUR 2.0
Safnar köttum

X-Men: The Last Stand

2006-05-31 16:28  _Bíóiđ_

Ég veit að í huga hardkor Xmen fræðinga var plott þriðju myndarinnar ábyggilega byggt á einhverri ótrúlega rómantískri lógík þar sem maðurinn með eldaugun og hugarflugsstúlkunni var ekki skapað nema skilja. Ég sat bara þarna og velti því fyrir mér hvort það hefði nú ekki verið ómerkilegt að drepa greyið eldaugnamanninn bara vegna þess að skoðanakannanir hefðu leitt í ljós að áhorfendur vildu frekar fá að sjá Hugarfluggstúlkuna með Wolferine í sexíaksjón...

Annars fannst mér myndin bara voða fín. Allskonar skemmtilegar allegóríur um frelsi til að vera öðruvísi og um það hvernig samfélagið vill útrýma það sem það skilur ekki og svona. Og svo auðvitað hasar og skemmtilegheit jájájá. Mér fannst englastrákurinn sorglega vannýttur en það er nú bara ég og mitt englablæti og ég veit ég á bara að þegja yfir því og halda áfram að horfa aftur og aftur á Gods Secret Army og velta mér upp úr ótal birtingarmyndum Gabríels.

Ég verð svosem ábyggilega búin að gleyma þessari mynd eftir nokkra daga. En það var voða gaman í bíóinu...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!