The Year is '42
2006-07-30 20:29 _Bókin_
Framan á bókinni The Year is '42 eftir Nella Bielski er eftirfarandi kvót úr Guardian:
"This is one of theose very rare novels that you want to read again as soon as your've got to the end."
Ég náði aldrei að komast inn í hana. Ég reyndi og reyndi og lá meira að segja í baði og hafði ekkert annað lesefni við höndina en það var ekkert við textann sem greip mig. Svo ég réttlætti mig með því að hugsa til Daniel Pennac og ákvað að leyfa mér að gefast upp á fertugustu blaðsíðu.