Hvaða hlutverki gegna vínveitingahús í þínu lífi?
2006-10-04 21:49 Blog
Mig vantar nokkra góða menn og nokkrar góðar konur á aldrinum 25 til 35 ára til að taka þátt í rannsókn sem ég er að vinna að. Hún lýtur að vínveitingahúsum og því hvaða hlutverki þau gegna í lífi fólks á þessum aldri. Með vínveitingahúsum er átt við kaffihús, bari, veitingahús og alla þá staði þar sem áfengis er neytt/selt. Þetta er svokölluð dagbókarrannsókn og þáttakan fer þannig fram að þáttakendur skrifa mér lýsingar á heimsóknum á slíka staði og senda mér þær í tölvupósti. Ég strippa svo lýsingarnar af öllu því sem hægt er að rekja til viðkomandi og vinn svo úr lýsingunum ásamt Hildigunni Ólafsdóttur dr. philos.. Niðurstöðurnar verða birtar í formi einnar eða fleiri greinar í ritrýndu fagtímariti. Verið er að vinna sambærileg verkefni í Helsingfors, Osló og Stokkhólmi.
Ég gekk auðvitað strax á vinahópinn minn og nokkrar góðar manneskjur þaðan hafa skilað mér lýsingum. Mig vantar hinsvegar enn þáttakendur til að fylla upp í þann fjölda lýsinga sem við þurfum að ná og það væri mjög gott ef þeir einstaklingar kæmu ekki úr mínum nánasta vinahópi, hreinlega væri gott ef þeir væru ókunnugir, upp á það að ná fram meiri fjölbreytni í lýsingum.
Ef þú hefur áhuga á því að taka þátt, hafðu samband við mig í gegnum hið þjála netfang vinveitingahusarannsokn@gmail.com og ég segi þér nánar frá þessu. Þetta er hreint ekkert svo sársaukafullt verkefni að taka þáttt í og eiginlega bara soldið skemmtilegt!







