UNNUR 2.0
Safnar köttum

Er á leiđinni til Kaupmannahafnar

2008-02-16 23:54  Blog

Síðustu þrjár vikur eru heldur betur búnar að vera pakkaðar. Auk hins daglega er ég búin að undirbúa og halda heilsdagsnámskeið um munnlega sögu, búin að halda fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélagsins, búin að halda utan um og framkvæma verkefni á Vetrarhátíð og nú á morgun fer ég til Kaupmannahafnar. Tilgangurinn er tveggja daga vinnufundur með félagsskap sem starfar undir formerkjm NAD og er rannsaka það hvaða hlutverki vínveitingahús gegna í tilveru ungs fullorðins fólks. Rannsakendur koma frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku og ég og Hildigunnur Ólafsdóttir, doktor í afbrotafræði, höfum síðastu tæpu tvö ár verið að vinna að íslenskri rannsókn. Ég segi ykkur betur frá þessu seinna, akkúrat núna ætla ég að skríða upp í rúm og knúsa kattarræksnin mín.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!