UNNUR 2.0
Bitra Internetmamman snýr aftur

Helgartepoki

2008-04-06 13:49  Blog

Í gær fór ég á hugvísindaþing, borðaði á nýja mexíkóska veitingastaðnum við hliðina á 22, fór í leikhús og svo á bargöltr. Allt var þetta mæta skemmtilegt og innihélt samvistir við gott fólk, bæði kollega, kunningja og vini. Um þrjúleytið sá ég óvætt á barnum og ákvað að slík teikn þýddu að það væri best að drífa sig heim. Sem ég og gerði. Fór sátt að sofa með spælt egg í maganum og vaknaði nægilega snemma til þess að vera núna búin að vinna og dugnast í nokkra klukkutíma.

Ég get ekki mælt nógsamlega með nýja Santa María mexíkóstaðnum. Staðurinn er huggulegur, þjónustan hröð og góð, maturinn gómsætur og allir réttirnir eru undir þúsundkallinum. Ég ætla þangað aftur við fyrsta tækifæri.


Birt víðar

Fræðalestur

Fræðavefur

Fræðaviðburður

User:
Pass:

Mússíkin

Vefsíðan

Viðburðurinn

Bíóið

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site


(C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!