UNNUR 2.0
Bitra Internetmamman snýr aftur

Helgartepoki og hjólaviðgerðir

2008-04-13 15:08  Blog

Í gær kom ég ýmsum útréttingum í verk. Þó ekki fyrr en eftir að ég hafði borðað stóra morgunverðareggjabúrrítu, drukkið kaffi og lesið moggann. Í hádeginu var ég svo komin niður í bæ þar sem ég heimsótti Borgarhjól og keypti ný dekk undir hjólið mitt, lét fjölfalda lykla, fór með skartgrip í viðgerð, lenti á nokkrum kjaftatörnum og leyfði mér að skoða dót sem ég þarf ekki á að halda í búðum. Ég fékk mér líka þynnkupulsu og kók í Vikivaka. Á leiðinni heim kynntist ég nágrannakonu og risarisastóra skógarkettinum hennar sem eltir hana eins og hundur þegar hún fer í gönguferðir með barnavagninn. Ég verslaði í matinn í Bónus, lauk við leikdóm sem ég skuldaði Kistunni og þreif örlítið.

Síðasta fimmtudagskvöld fór ég á fríkeypis viðgerðarnámskeið hjá Fjallahjólaklúbbi Íslands. Þar lærði ég fullt af hlutum um viðhald hjóla og einfaldar viðgerðir, drakk kaffi, borðaði vöfflu, spjallaði við félagsmenn, komst að því að innanbæjarhjólarar á ryðhjólum eru fullvelkomnir og ákvað að það væri gráupplagt fyrir mig að ganga í félagið og fá þannig aðgang að verkstæði í 100 metra fjarlægð frá heimili mínu, sérhæfðum verkfærum og ráðagóðum hjólanördum. Í auglýsingunni sem dró mig á staðinn voru þeir sem eiga biluð hjól hvattir til að koma með þau á staðinn og láta líta á þau. Biluðu hjólin voru svo notuð sem sýnisdæmi á námskeiðinu sem fór þannig fram að biluðu hjólunum var vippað upp á statíf og gert við það sem var að með auðskiljanlegum útskýringum og áhugaverðum fróðleiksmolum.

Það vill svo til að guli bananinn minn er með lokuðu gírakerfi, sem gerir það að skipta um afturhjólið töluvert flókið. Sem er ástæðan fyrir því að Borgarhjól hefur í gegnum tíðina verið í áskrift að peningunum mínum. Þetta gerir það líka að verkum að hjólið mitt hentaði ekki til að nota sem sýniseintak á námskeiðinu. Annar hjólanördanna sem sáu um námskeiðið bauð mér hinsvegar að koma með það upp í klúbbhús á laugardeginum, hann yrði þar að stússast og skyldi bara sýnikenna mér hvernig þetta væri gert. Þannig vildi það til að í gær lærði ég að gera við sprungið dekk, díla við flókna afturhjólið og skipta um bremsuvír. Reyndar fór ekki betur en svo að þegar ég hjólaði af stað á hjólinu komst ég fljótlega að því að gírkerfið er illa farið eftir að hafa staðið úti allan veturinn og það þarf að opna það og smyrja. Sem hjólanördinn bauðst til að græja fyrir mig næst þegar hann væri með viðgerðakvöld eftir tvær vikur.

Mér finnst fjallahjólaklúbburinn ógeðslega kúl. Og mér finnst geðveikislega kúl að fá tækifæri til að læra að sjá sjálf um hjólið mitt og læra kannski líka að verða betri hjólreiðapía. Og ég er að spá í því að fara í einhverja hjólaferðanna þeirra ef tími leyfir núna í vor og sumar.

Systir mín og kærastinn hennar borðuðu kvöldmat með mér. Restinni af kvöldin eyddi ég svo í freyðibað, við páskaeggsát og bóklestur. Það var frekar fínt.


Birt víðar

Fræðalestur

Fræðavefur

Fræðaviðburður

User:
Pass:

Mússíkin

Vefsíðan

Viðburðurinn

Bíóið

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site


(C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!