Samtýningur
2008-04-14 14:11 Blog
Þið getið lesið á Kistunni hvað mér fannst um leikritið Sá Ljóti sem við Katla fórum á um daginn. Og ef þið nennið ekki að lesa þá fannst mér það í stuttu máli mjög skemmtilegt.
Ég er farin að verða mjög spennt að fara til Helsinki. Eyddi gærdeginum í að undirbúa mig fyrir ferðina. Er að fara að tala á þessari ráðstefnu, svo heimsæki ég þessa stofnun og í leiðinni heimsæki ég Tötju sem ég hef ekki séð allt of lengi.
Bráðum skal ég svo reyna að pósta mynd af fyrstu þrítugsafmælisgjöfinni...







