UNNUR 2.0
Bitra Internetmamman snýr aftur

Bestu plön manna og músa

2008-04-17 18:50  Blog

Fleh. Hringdi og pantaði borð fyrir tíu manns á Tapas barnum. Þegar sá sem ég talaði við var búinn að taka niður allar upplýsingar sagði hann mér að hann gæti ekki tekið við tíu manns klukkan 8 á laugardagskvöldi nema fá fyrirfram að vita hvað yrði pantað.

Sem mér finnst bæði asnalegt af því að tíu manns er ekki það stór hópur og svo var það heldur ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér að halda áfram í hinum daglega mötuneytisfíling þar sem maður veit hvað maður borðar út alla fokkings vikuna og ég er á hundrað þessa dagana að reyna að koma í verk öllu því sem ég þarf að koma í verk áður en ég fer til útlanda og ég get ekki tekið 1-2 tíma í að hringja á milli og skipuleggja hvað fólk vill borða. Svo ég sagði honum að það hentaði mér þá greinilega ekki að halda afmælið mitt hjá þeim.

Þannig fór það. Þið sem ætluðu að leika við mig á afmælisdaginn minn, vitið þið um einhvern stað sem ykkur langar að borða á sem myndi taka við okkur?

Uppfært 18. apríl. Þegar ég var búin að vera í fýlu í smástund áttaði ég mig og hringdi í Vín og Skel. Þeir tóku niður pöntunina mína með glöðu geði.


Birt víðar

Fræðalestur

Fræðavefur

Fræðaviðburður

User:
Pass:

Mússíkin

Vefsíðan

Viðburðurinn

Bíóið

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site


(C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!