Bargöltr
2008-04-18 11:14 Blog
Ég er svo upptekin þessa dagana að ég hef nægan tíma til að hanga á börum. Ég borðaði kvöldmat með Sophie á Santa Maria. Þar var maturinn alveg jafn góður og síðast og það var gaman að sitja og spjalla. Þegar við fórum tók ég eftir því að til beggja handa sátu konur sem ég kannaðist við, ein þeirra meira að segja fræg bloggynja. Og kunningjakona mín hafði setið hinum megin í salnum lungann af tímanum sem ég var þar. Það fannst mér fyndið og dró þá ályktun að Santa Maria höfði greinilega til fólks sem mér líkar vel við.
Eftir matinn settumst við inn á Boston, sötruðum rauðvín og töluðum og töluðum. Þegar Sophie fór heim kom ég við á Barnum þar sem ég vissi af Hilmi, Gauta fyrrverandi Tokyobúa og fleiru góðu fólki. Þar varð fleira fólk sem hingað til hefur bara verið til á internetinu að holdi og blóði þegar ég áttaði mig á því að ég var að tala við Matta hennar Línu. Stoppaði nægilega lengi þar til að vera syfjuð í morgun.
Mér finnst indælt hvað Reykjavík er lítil. Mér finnst líka gaman hvað vinir mínir eru upp til hópa að gera góða og skemmtilega hluti.







