UNNUR 2.0
Safnar köttum

Listahátíđarhelgi

2008-05-19 11:01  Blog

Ég sá töluvert af þessari blessuðu Listahátíð um helgina. Ég endaði vinnuvikuna á því að rölta á opnun í Nýló, en safnið er í nettu samstarfi við Miðstöð munnlegrar sögu um söfnun heimilda um sögu safnsins. Þaðan sogaðist ég síðan inn í nokkur gallerí á leið minni heim, drakk rauðvín og hitti fullt af vinum og kunningjum í svipuðum erindisleysisgjörðum. Ég notaði fína gjafakortið sem elsku samstarfsfólkið mitt gaf mér í afmælisgjöf til þess að kaupa mér miða á Amínutónleikana og þeir voru æði. Á laugardeginum heimsótti ég svo Listasafn Íslands og sá skemmtilegt dót þar á sýningunni List mót byggingarlist. Sérstaklega mæli ég með verki Elínar Hansdóttur. Sunnudagsmorgninum eyddi ég svo í Hafnarhúsinu á tilraunamaraþoni. Það var áhugaverð tilraun sem að mörgu leyti gekk skemmtilega upp. Ég skoðaði líka sýningarnar í safninu og var afskaplega hrifin af verki sem er sýnt í myrkvuðum rými. Ég man þó því miður ekki hver listamaðurinn er sem er ábyrgur fyrir því en það er svo flott að ég ætla að koma við aftur í sumar og horfa meira á það.

En það var ekki bara listahátíð sem dró mig út úr húsi um helgina. Ég þekktist líka boð á opnun sýningarinnar Kæri Borgarstjóri en hún er sett upp í tilefni hundrað ára afmælis borgarstjóraembættisins af vinkonum mínum Hilmu og Diddu. Þetta var skemmtileg sýning, skemmtiatriðin á opnuninni voru sömuleiðis skemmtileg og það var skemmtilegt að borða franska súkkulaðiköku og sötra freyðivín og spjalla við fólk. Og svo fór ég auðvitað á poppkviss á Organ á föstudeginum.

Ekki það að helgin hafi bara snúist um list og freyðivín. Ég náði líka að hafa það voða gott heima, klappa kisum, vakna fyrir allar aldir og bera út Mogga í morgunkyrrðinni, borða góðan mat, vinna í ritgerð og aukaverkefnum, taka til og svo kláraði ég endanlega frágang á baðherbergisflísalagnarverkefninu.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!