Á ég ađ skipta yfir til Nova?
2008-05-19 12:18 Blog
Ég er orðin leið á verði og þjónustu Vodafone. Mun skipta yfir í Nova í dag nema einhver stöðvi mig og segi mér að það sé feilspor að fá netið beint í punginn. Ég vil taka það fram að eins og er þá er ég að notast við minnsta net sem hægt er að fá hjá Vodafone: ADSL samband - 1mb á sekúndu og 1GB niðurhal. Fyrir það er ég að borga vel rúmar 3 þúsund krónur á mánuði. Novapungurinn myndi gefa mér sama magn og varla verri hraða en þeir lofa allt að 3mb per sekúndu.
Þið sem eruð með Nova pung eða þekkið til, er þetta kannski algert drasl? Hvernig er þjónustan þeirra?
Kræst, á ég að trúa því að það hafi enginn skoðun á þessu? Eru lesendur mínir almennt komnir á einhverjar gleðipillur og hættir að geta nöldrað yfir öllu frá a til ö?