Ađ leysa vandamál
2008-05-24 11:38 Blog
Í gær fór ég eins og flesta föstudaga á poppkviss á Organ. Ojbarasta hvað ég þoli ekki á mér hárið, það er orðið svo slitið og öööömurlegt og mig langar bara að klippa það af sagði ég við Hafdísi og Kalla þegar við vorum komin á þriðja bjór. Þeim fannst það góð hugmynd. Svo við fórum heim til mín þar sem ég klippti af mér hárið.
Hafdís hjálpaði mér að snyrta hnakkann. Svo pöntuðum við pitsu og horfðum á vídeó.


