Sunnudagur
2008-05-25 23:18 Blog
Ég var að koma úr ísgöngutúr með Loru. Það var indælt en ég held samt það sé ekki alveg komið ísveður. Mér varð kalt þar sem við sátum á Melaskólaleikvellinum og sleiktum ís. Annars er ég búin að vera þreytt og þunn í dag. Eyddi gærkvöldinu í heljarinnar útskriftarveislu og júróvisjónpartíi þar sem áfengið flæddi og ég raðaði í mig exótískum snittum með kengúrum, flugfiskahrognum, humar og önd. Það var kærasti systur minna, Alfreð sem var að útskrifast. Í næstu viku fljúga þau svo til Frakklands þar sem þau ætla að eyða sumrinu.
Mér finnst gaman að vera með stutt hár. Á sama tíma er ég samt svo geðveikislega meðvituð um að ég hafi gerbreytt útlitinu mínu að ég góni á alla fleti sem endurvarpa spegilmynd og hef spurt alla sem ég hef hitt tuttuguogníu sinnum hvað þeim finnist.
Ég glataði myndavélinni minni í síðustu viku. Það er glatað.