Kvartfćrsla
2008-05-27 09:30 Blog
Ég hélt lengi vel í gær að ég væri einfaldlega bara eftir mig eftir djammhelgi ársins og að særindi í hálsi stöfuðu af því að hafa haldið kompaní við reykingafólk. En í morgun áttaði ég mig á því að ég er með bara hálsbólgu og á nippinu með að vera lasin. Svo er mér líka pínulítið íllt í maganum. Það sökkar og mig langaði mest að vera bara heima og vorkenna mér.
Ég er ennþá ógeðslega fúl yfir því að myndavélinni minni hafi verið stolið. Ég er með F1 pakka hjá Vís en tryggingarnar neita að borga hana. Konan sem ég talaði við í símann sagði að mér hefði þurft að vera ógnað og myndavélin tekin af mér þannig til þess að fá hana bætta. Það dugir ekki að henni hafi verið stolið úr tösku á skemmtistað. Svo sagði hún mér líka, og hljómaði eins og henni fyndist ég heimsk, að tryggingarnar litu svo á að leggði maður töskuna á borð sem maður sæti við á skemmtistað en héldi ekki í hana að þá ætti maður ekki rétt á bótum hyrfi eitthvað úr henni. Og ég varð svo pirruð að ég spurði hana beint út, þótt ég sé almennt sannfærð um það að fólk sem svarar í símann í svona fyrirtækjum viti ekki neitt og vinni bara þarna, til hvers í ósköpunum ég væri þá með þessa alhliða tryggingu hjá þeim ef hún bætti ekki svona tilvik? Og hún muldraði eitthvað um húseigandatryggingu og dót en tilfellið er bara það að ég gæti alveg verið með húseigandatryggingu án þess að vera með súperdúpertryggingarpakka. Og svo hótaði ég að segja upp tryggingunum mínum og er í alvöru að spá í að minnka þær við mig.
Það var annars skemmtilegt hvað stúlkan sem ég talaði við var tvísaga. Ég sagði nefnilega við hana að það væri skrýtið að þetta væri ekki bætt þar sem tryggingin sem ég er með nær meðal annars til þess þegar skólatöskum, úlpum og öðru slíku stöffi er stolið af krökkum í skólum og íþróttamiðstöðvum. Og hún sagði að nei, það gildir bara úr læstum hirslum. En hún dró það strax til baka þegar ég benti henni á að hvorki kemur það fram í skilmálunum, sem ég var nýbúin að lesa, né heldur er það vaninn að skólabörn fái læstar hirslur í skólum og íþróttamiðstöðvum.
Þegar ég var búin að pexa nógu mikið sagði hún að ég gæti svosem lagt fram kæru hjá lögreglu og tilkynnt þjófnaðinn til Vís. Og ég spurði tilhvers hún væri að ráðleggja mér það ef að hún vildi meina að það væri ekki sjéns að ég fengi tjónið bætt. Og svarið sem hún gaf mér var það að sumt fólk vill fara þessa leið.
Og ég ætlaði svosem að fara þessa leið og hóta uppsögn trygginga og ævarandi hexi á tryggingarfélagið þangað til ég mundi eftir þessu fokki sem kallast sjálfsábyrgð (18 þús) og áttaði mig á því að myndavélin mín er það ódýr (20 þús) að ég myndi í rauninni ekki fá neitt út úr því að vesenast.
Það versta við myndavélarþjófnaðinn er þó að vita það að myndavélinni minni mun líklega verða hent. Það er nefnilega ekki hægt að tæma hana nema með því að annað hvort kaupa sérstaka og illfáanlega (hér á landi) dockingstöð fyrir hana eða sérstakan kortalesara. Og síðarnefnda lausnin skilar manni svosem litlu þar sem það er alls ekki hægt að hlaða batteríið í henni nema eiga dockingstöðina. Og þar sem ég hef litla trú á því að þjófótt fólk sé upp til hópa mjög gáfað og gefið fyrir að hafa fyrir því að kaupa dýra aukahluti til að nýta þýfi þá sé ég fyrir mér að litla fallega myndavélin mín liggi núna einhversstaðar í dauðateygjunum.