UNNUR 2.0
Safnar köttum

Útiköttur

2008-05-27 15:13  Blog

Ég á góða nágranna. Einn þeirra hringdi í mig sirka hálftíma eftir á ég mætti til vinnu í morgun og lét mig vita að litla hvíta kisan mín væri uppi á þaki hjá mér og kæmist ekki inn því allir gluggar væru lokaðir. Ég hjólaði heim og þegar þangað var komið hímdi Lúx vælandi í gluggakistunni fyrir neðan stofugluggann. Mér tókst að teygja mig í hana og hífa hana spriklandi upp á hnakkadrambinu. Ég veit ekki hvort hún var meira móðguð yfir meðferðinni eða skelkuð en hún hljóp allavega beint undir rúm og faldi sig.

  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!