UNNUR 2.0
Safnar köttum

Stóri heilsudagurinn

2008-05-29 00:01  Blog

Í dag var ég afskaplegt heilsufrík. Byrjaði daginn á því að bera út mogga í klukkutíma. Svo eru miðvikudagar jógadagar í vinnunni. Þar sem þetta var síðasti tími annarinnar lét kennarinn okkur gera kjánalegri æfingar en venjulega. Sérstaklega leið okkur kjánalega þegar við vorum látin liggja á gólfinu í einhverskonar sikksakkmunstri með höfuðin á maga næsta manns og hlæja í takt. Sem var reyndar mjög gaman. Og kjánalegt. Eftir vinnu skelltum við Hafdís okkur svo í sund í Árbæjarlaug.

Mér til mikils ama er ég hressari eftir allt þetta aktívitet en ég er vanalega á kvöldin. Mér til ama segi ég því mér er meinilla við að viðurkenna það að svona lagað hressi bæti og kæti. Það gæti sett á mig pressu að fara að haga mér svona reglulega.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!