UNNUR 2.0
Safnar köttum

Sjómannadagurinn

2008-06-02 12:11  Blog

Hafdís var svo sæt að hringja í mig og stinga upp á því að við brygðum okkur á bæjarrölt í tilefni sjómannadagsins. Við heimsóttum því Víkina, sjóminjasafn Reykjavíkur, skoðuðum varðskipið Óðinn, sáum furðufiska á Miðbakka og gæddum okkur á gómsætum mat hjá Sægreifanum.

Forsetasvíta í varđskipi

Varðskipið Óðinn var smekkfullt af fólki sem tróðst um þrönga gangana. Við Hafdís sátum um stund í forsetasvítu varðskipsins og rifjuðum upp Akraborgarminningar og glæstari tíma. Það var mun meiri elegans yfir því að sitja í Akraborginni ægifögru en að hristast í strætó upp á Skaga.

Um borđ í varđskipi

Í brúnni hitti ég svo myndarlegan einkennisklæddan mann en hann reyndist gersamlega áhugalaus um mig. Hafdís reyndi að hugga mig með því að halda því fram að hann hefði líklega engan áhuga á kvenfólki yfirleitt og hélt því fram að frændi sinn hefði rekist á hann í hommaklúbbi í Hull. Ég þurrkaði tárin úti á þilfari og Hafdís skimaði höfnina í leit að kynvísum karlmanni handa mér.

Um borđ í varđskipi Blálanga á Miđbakka

Á miðbakka skoðuðum við furðufiska. Þeir lágu dauðir á ís í plastkerum. Útundan mér heyrði ég konu halda því fram að þetta væru sömu fiskarnir og hefðu verið til sýnis í fyrra, þeim hefðu greinilega bara verið skellt aftur í frystinn í millitíðinni. Inni í vöfflusölutjaldinu var Húsdýragarðurinn með skringidýr til sýnis og ég fékk íllt í magann þegar ég sá lítil börn kreista sæbjúgu af öllu afli og vinda upp á þau og heyrði móður áminna son sinn um að það væri bannað að slíta fæturna af krabbanum. Svo fengum við okkur rabbabara og sykur í plastmáli til að hughreysta okkur og horfðum á mývetnskan kúluskít fljóta í glerkrukku.

Á Sćgreifanum

Að lokum brugðum við okkur til Sægreifans , löptum fáránlega góða humarsúpu og borðuðum grilluð fiskispjót. Þar var margt um manninn en mér heyrðist á máli þeirra sem sátu í kringum mig að flestir væru að koma þarna í fyrsta skiptið. Við enduðum svo daginn heima í sófa að súpa te og finnskan berjalíkjör í eftirrétt.

Á Sćgreifanum


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!