Ađ nenna og nenna ekki
2008-06-03 10:24 Blog
Í morgun var indælt að vera blaðberi. Sólin var hátt á lofti og heitt úti í morgunsárið. Og blaðapakkinn sem beið mín var ekki mjög stór.
Ég hef nefnilega ekki verið með fast hverfi heldur verið að bera út hér og þar, nokkra og nokkra daga í senn í afleysingum. Sem er ekki sérlega sniðugt því maður nær ekki að koma sér upp neinni rútínu. Þessvegna ætla ég heldur ekki þegar þessi vika er búin að nenna þessu lengur. Ekki fyrr en seinna í sumar þegar ég á bókaða eitt stykki götu í heilan mánuð.
Morguninn var samt afskaplega indæll.