Hvítabjörn uppi á heiđi
2008-06-03 11:46 Blog
Þegar ég las viðbrögð moggabloggarans sem taldi sjálfsagt að aflífa dýrið í staðinn fyrir að vera að vesenast þetta varð mér sem snöggvast hugsað til þess hvort svipuð lógík hefði ráðið gjörðum þeirra sem drápu Spánverjana hér í denn.
Bóndi #1: Það er alltof mikið vesen að vera að ná þeim lifandi. Svo er heldur engin sérfræðiþekking hér á landi til að traktera þá þangað til við komum þeim á skip heim til sín. Maður veit ekki einu sinni hvað þetta étur! Svo ég tali nú ekki um kostnaðinn!
Bóndi #2: Mæltu manna heilastur! Tökum exir vorar og göngum! Þeir eru ekki friðhelgir nema þeir séu á hafís eða á sjó og ég tel klárt að bæði konum og búfénaði stafi af þeim mikil hætta!