Gönguferđir í Vesturbćnum
2008-06-05 09:44 Blog
Gærdagurinn var ágætur. Ég hóstaði ögn minna en ég hef gert síðustu daga og get því krossað puttana og vonað að ég fari að losna við þessa slæmsku. Sérstaklega kom hóstakastsrénunin sér vel í morgunsárið en vinnudaginn byrjaði ég úti í Norræna húsi þar sem ég kynnti Miðstöð munnlegrar sögu fyrir nemendum í samnorræna náminu Radiophonic Narration. Miðstöð munnlegrar sögu er einn aðila að verkefninu sem gengur út á það kennslu fléttuþáttargerðar að dönskum sið. Mjög spennandi stöff sko og flott fólk sem var að kenna þennan hluta sem er kenndur hér á landi þessa dagana. Ég hefði sjálf verið mjög til í að sitja námskeiðið. Ég vildi svo gjarnan hafa tíma til að gera mun fleiri hluti en sólarhringurinn leyfir.
Eftir vinnu hitti ég svo Loru fyrir utan Vesturbæjarlaugina. Sem reyndist lokuð en Lora heimtaði engu að síður að við færum í sund. Svo við gengum alla leið út í Seltjarnarnesslaug. Ég hef ekki komið þangað eftir breytingarnar og mér fannst fyndið að ganga inn í búningsklefann og sjá að þar hafði verið flísalagt með baðherbergisflísunum mínum, reyndar einum tón neðar í litrófinu. Við lágum í pottinum, ég synti smá og svo gengum við aftur til Reykjavíkur, borðuðum kvöldmat á Subway og svo fór ég heim þar sem ég gekk svo til alveg frá einu stykki grein.
Annars þá er blaðburður ágætis tækifæri til að skoða nærumhverfið. Síðustu daga hef ég til dæmis tekið eftir því að sunnan Hringbrautar brosa flestir brunahanar.
