Laugardagsmorgunn
2008-06-07 10:58 Blog
Planið í morgun var að sofa út. Engin útburður í fyrramálið, hugsaði ég dauðfegin þegar ég kom slöpp og þreytt heim úr vinnunni í gær. Ég fór í Bónus, eyddi kvöldinu í smá tiltekt, eldaði mér góðan kvöldmat, lá í freyðibaði, gerði út af við hárin á fótleggjunum á mér, horfði á Southparkþátt og skreið svo snemma upp í rúm með góða bók. Ég var sofnuð fyrir klukkan tólf með vekjaraklukkuna stillta á tíu.
En klukkan hálfsjö í morgun byrjaði sjálfvirk áminningarþjónusta Morgunblaðsins að hringja í mig. Og eftir samtal við blaðberadeild áttaði ég mig á því að ég hafði tekið feil á dagsetningum og að það var dagurinn í dag en ekki gærdagurinn sem er síðasti útburðardagurinn í bili. Konan í símanum var reyndar ósköp samúðarfull og sagðist skyldu redda þessu. Og ég reyndi að sofna aftur en var bara glaðvakandi svo að tíu mínútum seinna hringdi ég bara í blaðberadeildina og sagðist vera farin á fætur.
Núna er klukkan ekki orðin ellefu en ég er búin að bera út, borða stóran morgunmat, lesa blöðin, gera allsherjarlaugardagshreingerninguna, baða mig, leika við kisurnar og svara tölvupóstum sem ég hef hummað fram af mér síðustu daga. Sem er auðvitað heldur sjúkt. Mér sýnist ég vera nokkurnvegin laus við hóstann og slappleikann og mun því tryggja það að morgundagurinn fari ekki í slíkan dugnað með því að fara á barinn í kvöld og halda mig þar fram undir morgun.