Kjáni dagsins
2008-06-11 10:12 Blog
Ég ætla að gapa smá yfir kjánalegum málflutningi. Hlynur Einarsson, varaformaður Vöku tjáir sig í Fréttablaðinu í dag um styttan opnunartíma Vegamóta, Ölstofunnar og þriðja staðarins. Lesið...
Mér finnst mjög kjánalegt að stytta opnunartíma á skemmtistöðunum" segir Hlynur Einarsson, varaformaður Vöku. Eigendum þriggja skemmtistaða hafa borist bréf þar sem þeim er gert að loka fyrr um helgar en þeir hafa gert. ,,Það er betra að fólk sé jafnt og þétt að tínast úr bænum en að allir geri það á sama tíma" segir Hlynur. ,,Það yrði örugglega miklu meiri erill hjá lögreglu í því að sinna slagsmálum úti á götu en þeim sem dyraverðirnir geta stoppað inni á stöðunum." Hlynur segir að fólk sem búi í miðbænum viti af því að þar séu skemmtistaðir og læti fram eftir nóttu. ,,Það er enginn neyddur til að búa þarna og þú getur örugglega selt íbúð í 101 og fengið fína íbúð í öðru póstnúmeri".
Ok, látum það liggja á milli hluta að Hlyni finnst ekki mikilvægt að náð sé jafnvægi á milli hagsmuna íbúa og bareigenda í miðbænum. Það er ekki það sem mér finnst fáránlegt, ég hef heyrt það viðhorf svo oft áður að íbúum miðbæjarins sé bara nær að búa þar. Það sem mér finnst fáránlegt er að varaformaður Vöku, sem virðist vera hress ungur maður af myndinni að dæma, geri sér ekki grein fyrir því að flestir staðir í miðbænum eru einmitt opnir mun lengur en til þrjú og þessi breyting er einmitt til þess fallin að stuðla að jafnari tæmingu miðbæjarins. Væri ég blaðamaður hefði ég ýtt á delete og hringt í einhvern annan, mér hefði fundist vandræðalegt að undirstrika þá staðreynd að blöðin eyða iðulega heilmiklu plássi undir málflutnings fólks sem hefur ekki hundsvit á því sem það er að tala um.
Þess má geta að samkvæmt þjóðskrá býr Hlynur í úthverfi.