Lúx litla er dáin
2008-06-15 13:43 Blog
Seint á föstudagkvöldið féll Lúx litla út um þakgluggagluggann í eldhúsinu og niður á götu. Hún hafði klifrað út um hann og stóð ofan á glerinu. Ég sá hana ekki, heyrði bara mjálmið þegar ég lokaði glugganum og hún hrapaði niður. Ég hljóp út og hún lá á gangstéttinni og reyndi að draga sig áfram á litlu framfótunum. Ég rauk með hana upp á dýraspítala, hún reyndist hryggbrotin og það var ekkert hægt að gera fyrir hana. Hún var svæfð morguninn eftir og ég gróf hana á fallegum stað úti í sveit. Ég held hún hafi ekki þjáðst mikið, hún missti allar tilfinningar fyrir neðan brotið og hún fékk róandi lyf og verkjalyf í sprautu á spítalanum. Hún malaði þegar ég strauk á henni höfuðið á meðan læknirinn skoðaði hana. Mér fannst erfiðast að þurfa að skilja hana eftir yfir nóttina.
Lúx litla var afskaplega góð kisa og hún reyndist mér afskaplega vel. Hún kom til mín á erfiðum tíma og gerði mikið til þess að dreifa athygli minni frá eigin sársauka. Lúx kom frá Kattholti, hún hafði verið send þangað í kassa eins og hver annar böggull með Herjólfi. Hún var vannærð og afskipt og morandi í eyrnamaur. Fyrst hélt ég hún væri líklega heyrnarlaus eða þroskaheft því að hún brást ekki á neinn hátt við umhverfi sínu og sýndi engin viðbrögð við hávaða eða hljóðum. Eftir sirka mánuð kom þó í ljós að hún hafi líklega bara verið svona afskaplega illa haldin. Hún braggaðist og stækkaði og þegar hún dó var hún orðin að afskaplega fínni kisu.
Lúx var þó alltaf mjög lítil. Hún var rétt rúmlega tvö kíló, helmingi léttari en systur hennar. Henni fundust bananar og melónur góður matur. Hún gat leikið sér endalaust að litlum leikfangamúsum og henni fannst gaman að tuskast við Hafmey. Hún átti það til að reyna að veiða tærnar á mér á morgnana. Hún var ekki mikið fyrir það að láta halda á sér en fannst afskaplega gott að láta klóra sér á hausnum. Ég sakna hennar afskaplega mikið og ég er búin að grenja eins og fáviti við það að sjá hana ekki á græna púðanum, að sjá hana ekki í stofuglugganum, að sjá hana ekki stelast til að pissa í vaskinn eða klóra í sófann. Þetta var alltof stuttur tími sem hún fékk að vera til.






