Þjóðfræði á Þjóðarbókhlöðu
2008-09-09 14:25 Blog
Þjóðarbókhlaðan getur verið skrýtinn vinnustaður. Frá því í hádeginu hef ég verið með Stóð ég úti í tunglsljósi á heilanum. Tilefnið var umræða um fyrrum samstarfsmann sem kvaddi nýlega og í samhenginu meikaði það fullkominn sens að samstarfskona mín færi með kvæðið á meðan við hin kinkuðum kankvís kolli.
Ég er ein á skrifstofu svo ég látið það eftir mér að syngja aftur á bak og áfram um þær hættur sem því fylgja að góna á álfkonur meðan ýsan og tólgin storknar saman í maganum á mér og ég er ekki frá því að ég sé farin að hlakka til vetrar, snjókomu og bálkasta.
Annars er mig í allan dag búið að langa alveg geðbilaðislega mikið í eitthvað súrmeti. Asíur, súrsaðar gúrkur eða eitthvað slíkt. Ég spái því að kvöldmaturinn í kvöld verði brauð með heimatilbúna túnfisksalatinu mínu, stútfullu af smátt söxuðum asíum.