UNNUR 2.0
Safnar köttum

Morgunsund

2008-09-11 11:40  Blog

Ég dugnaðist í sund fyrir vinnu. Mér finnst voðalega gott að synda. Mér finnst gott að vera umlukin svölu vatni og mér finnst blái sundlaugarliturinn róandi. Og ég syndi af krafti því mér finnst gott að finna að hreyfingin taki á. Og eftir að hafa synt mína 500 metra teygi ég á helstu vöðvum og ligg svo í pottinum í smá stund. Hafi ég tíma fer ég líka í gufu og svo í ískalda sturtu, dýfi mér svo í heitasta heita pottinn í nokkrar mínútur og kóróna ferðina með annarri ískaldri sturtu. Og eftir sundið líður mér alltaf eins og nýrri og betri Unni.

Það sem mér finnst hinsvegar ekki gott er þegar á brautina mína bætast virðulegar eldri frúr í sundskóm og með rósóttar sundhettur sem synda afslappað baksund á miðri braut. Ég skil aldrei afhverju þær velja mína braut í staðinn fyrir að deila braut með einhverri hinna gömlu kvennanna sem synda afslappað baksund. Þar sem ég reyni að taka fram úr þeim án þess að sparka í þær, bölvandi og ragnandi í hljóði, dettur mér þó sú eina ástæða í hug að þetta sé einhverskonar hefnd fyrir það að ég sé ennþá ung og falleg og í barneign.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!