UNNUR 2.0
Safnar köttum

Damn good pie!

2008-09-15 16:32  Blog

Ég átti góða helgi. Föstudagskvöldinu eyddi ég í félagsskap nokkurra demóna, fyrst við rauðvínsdrykkju í Reykjavíkur Akademíunni og svo á Caruso þar sem við nutum góðs matar.

Laugardeginum eyddi ég í vinnunni, nánar tiltekið við það að kenna heilsdagsnámskeið um munnlega sögu og aðferðir hennar. Hópurinn sem ég kenndi í þetta skiptið var samsettur af áhugasömu og kláru fólki sem var mjög gaman að tala við. Eftir kennslu sýndi ég svo af mér þann dugnað að fara bæði í Krónuna og taka laugardagsþrifin heima áður en ég skellti mér í sund. Kvöldinu eyddi ég svo hrein og klórangandi heima í fínu hreinu íbúðinni minni við almennt hangs. Ég hlóð upp myndum úr Hornstrandagönguferðinni, spjallaði á msn, horfði á 3 bíómyndir og át popp, klóraði kisunum á bak við eyrun og hlustaði á nýja tónlist.

Ég svaf út á sunnudeginum, þreif meira, fór í endurvinnsluna, verslaði meira, las yfir texta fyrir vinkonu mína, vann í ritgerðinni minni, þvoði nokkrar þvottavélar og bakaði pæ úr síðasta rabbabaranum úr garðholunni minni. Um kvöldið kom Hafdís svo til mín og hrósaði pæinu í hástert á meðan við horfðum á Diary of the Dead. Eins og fyrri daginn tókst Romero að framreiða áhugaverða gagnrýni á samfélög og stjórnvöld í bland við blóðugar zombíur og gor og við stúlkurnar vorum afar sáttar að glápinu loknu.

Myndir Unnar Maríu 1919


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!