UNNUR 2.0
Safnar köttum

Mánudagskvöld

2008-09-16 10:50  Blog

Ég vaknaði við jarðskjálftann í morgun. Fyrst reiknaði ég með því að kettirnir væru að hoppa í rúminu en nei, þær kúrðu sig upp að mér frekar hvekktar á svipinn. Og líklega eru það dæmigerð viðbrögð Íslendings að ég sleppti því að vefja börnin mín í teppi og hlaupa út á náttkjólnum og lét mér nægja að líta á klukkuna og hugsa að vei, ég mætti leyfa mér að lúra í hálftíma í viðbót.

Í gærkvöldi komu Sigga, Kiddý og Edda til mín og ég gaf þeim kvöldmat. Þema kvöldsins var Grikkland og ég framreiddi krydduð buff, pítubrauð, grænmeti, tatziki, ólífur og kryddjurtaostahorn. Svo lágum við á meltunni yfir Taxi Driver.

Indælt. :)

Myndir Unnar Maríu 1928

Myndir Unnar Maríu 1944

Myndir Unnar Maríu 1937


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!