UNNUR 2.0
Safnar köttum

Tepokablogg

2008-09-25 11:24  Blog

Ég er búin að vera afskaplega upptekin stúlka þessa viku. Bæði stendur Miðstöð munnlegra heimilda að söfnun heimilda fyrir sýninguna Reykvíska Eldhúsið, sem opnar núna á föstudaginn og svo er ég einnig ráðstefnustjóri ráðstefnunnar Af hlaðborði aldarinnar, en hún er hluti af sýningunni og fer fram í Iðnó núna á laugardaginn. Sem betur fer eru þetta þó skemmtilegar annir. Og tími til að leika sér inni á milli.

Síðasta sunnudagskvöld gafst ég upp og stofnaði mér Facebook síðu. Ég á samt eftir að skilja um hvað allt fjaðrafokið snýst.

Ég fór í mat til systranna á mánudaginn. Kiddý reiddi fram gómsæta ofnbakaða fiskikartöflukássu með ýsu, risarækju og humri, osti og hvítlauk. Í eftirrétt voru heimabakaðar smákökur með súkkulöðum og brjóstsykri. Svo horfðum við á Lars and the Real Girl. Og hneyksluðumst á því hversu skammlaust nördastúlkan eyðilagði samband Lars og Biöncu. Það var frekar ljótt að horfa upp á það. Helst grunaði okkur að hjónadjöfullinn hefði ekki aðeins komið upp á milli þeirra heldur einnig einfaldlega eitrað fyrir Biöncu. Ef áfram fer sem horfið með mánudagaþemað verð ég búin að missa trúna á mannkyninu fyrir jólin.

Í fyrrakvöld sötraði ég rauðvínsglas, borðaði dökkt kryddlegið súkkulaði og skálaði yfir Skype.

Í gær lærði ég mörg orð í rússnesku. Og að bera fram ýmis s-hljóð.

Í kvöld stefnir allt á að ég fari í keilu með vinnufélögunum.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!