UNNUR 2.0
Safnar köttum

Mennskan

2008-09-29 16:25  Blog

Í gær lá ég heima og eyddi deginum í að vorkenna mér fyrir að hafa skemmt mér of vel kvöldið áður. Svo horfði ég líka á nokkrar myndir í tölvunni. Þar á meðan Sicko. Sem kom mér lítið á óvart en var þó áhugaverð áhorfs. Upp úr stendur samt nafn heilsusamlagsins, Humane. Sem var meðvitað notað í írónísku samspili umfjöllunar og myndmáls.

Í dag skoðaði ég myndir á Flickr úr víetnömsku stríðsminjasafni. Og hugsaði að, ugh, mennskan er það allra allra versta.

Og síðan þá er ég búin að vera upptekin af því að finnast akkúrat þetta áhugavert. Hvernig mennskan í okkur er akkúrat það sem gerir okkur samtímis ógeðsleg og full af ást.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!