Lykt frá ţví fyrir löngu síđan
2008-09-30 21:54 Blog
Það er bernskulykt af hvannalaufaseyði. Og mikið ofboðslega er hún góð! Það er samt svo skrýtið að hnusi ég beint upp úr bollanum finn ég lyktina mjög ógreinilega. Það er eins og hún berist best á hlið eða á ská.
Ég er örþreytt eftir sundið. Ég fór líka of aðeins of seint úr vinnunni og var orðin aðeins of vanétin. Ég bætti mér það upp með heilsuréttinum kjötfars og kál. Sem mér finnst mikið sælgæti. Svo lagðist ég upp í rúm í smástund með horrorsögu eftir China Miéville. Núna er ég að þykjast vinna agnarögn.
Ég man að þegar ég bjó á heimili þar sem var sjónvarp tókst mér að slæpast mun meira. Ég sakna svosem þess ekki en ég sakna svo auðveldra afsakana þeim mun meira.