UNNUR 2.0
Safnar köttum

Rauđvínsleginn tepokabloggfćrsla

2008-10-15 14:15  Blog

Það hefur verið lítið um blogg hér á þessum einkarekna fjölmiðli. Þó ekki vegna þess ég hafi tapað mér í kreppuáhyggjum og sé búin að liggja með höfuðið undir sæng heldur vegna þess að fyrir sirka tíu dögum helltist rauðvín yfir tölvuna mína og hún dó. Heimilistryggingin mín bætti hana en ég er enn ekki búin að finna mér nýja vél.

Ég hef það annars ágætt. Lífið gengur sinn vanagang og það er nóg að gera. Í gær borðaði ég hjá systrunum og horfði á Mean Creek. Það var notalegt. Síðustu helgi hélt ég heilsdagsnámskeið um munnlega sögu og toppaði svo daginn með því að halda prívatsushigerðarnámskeið fyrir Kötlu og Pétur. Arna bættist svo í hópinn og hjálpaði okkur að torga námsgögnunum. Sunnudaginn notaði ég í tiltekt, vinnu, kaffi með foreldrum og vinum og smá vídeógláp. Ég ætla að fara á Airwaves í ár og hlakka til því Bjarni kemur til landsins og það verður gaman að airweifast með honum.

12. desember fer ég svo til Mexíkó í mánaðarlangt jólafrí!


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!