UNNUR 2.0
Safnar köttum

Success has made a failure of our home

2008-10-20 20:18  Blog

Ég hef velkst um í tónlistarnostalgíu síðustu daga og eitt af þeim lögum sem ég hef leitað uppi á youtube er Am I not your girl með Sinead O'Connor. Ég mæli með því að þetta lag verði spilað í útför íslenska draumsins.

Ég hef verið döpur í dag þrátt fyrir góða daga undanfarið. Eða, kannski er ég einmitt döpur vegna góðra daga undanfarið. Það er nefnilega ágætt að gleyma sér við tónlistarveislu og víndrykkju í góðra vina hópi og mánudagurinn sem óhjákvæmilega fylgir í kjölfarið með fréttalestri og þreytu verður þannig ennþá grárri. Það bætast sífellt fleiri í þann hóp sem ég þekki sem hafa misst vinnuna eða óttast að missa vinnuna. Og ég kvíði því að setja niður á eftir til að reyna að glöggva mig á því hversu mikið lánasúpan mín mun hækka. Og það er erfitt að vera ekki hoppandi fjúkandi reið yfir því sinnuleysi sem virðist hafa verið aðalsmerki stjórnvalda og eftirlittstofnana síðustu misserin.

Ég er þreytt.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!