UNNUR 2.0
Safnar köttum

Tepokablogg

2008-10-23 22:18  Blog

Þegar maður ber tilveruna á eigin öxlum þarf stundum þarf bara einfalt viðvik til að létta manni lífið. Ingimundur var í heimsókn í kvöld og tók úr uppþvottavélinni fyrir mig. Mér finnst hundleiðinlegt að taka úr uppþvottavélinni og mér leið eins og ég hefði sloppið við einhvern ægilegan starfa og öll þreyta gufaði upp.

Það er lítið að frétta af mér þessa dagana. Airwaves var skemmtilegt, helst reyndar fyrir þá sök að Bjarni var á landinu með vinkonu sinni Nori og ég hékk með þeim svo til allan tímann. Það var bæði gaman og ljúft að hanga með Bjarna og gaman að kynnast Nori. Hún er stórskemmtileg. Þau fóru í gær og ég drakk freyðivín á Boston með þeim og Ingimundi og dansaði við Total Eclipse of the Heart.

Ég hef drattast tvisvar í íþróttahúsið þessa vikuna og stefni á að ná þriðja deginum á morgun. Hafdís fékk mig til að leggja loks í tækin og ég held það eigi eftir að gera mér gott.

Í vinnunni fæst ég aðallega við það að taka kreppuviðtöl þessa dagana. Viðtöl s.s. um það hvernig fólk er að upplifa kreppuna. Vilt þú gerast viðmælandi minn?

Ég er ennþá tölvulaus en held að ég sé búin að ákveða hvað ég vilji gera í tölvumálunum. Mig langar að kaupa mér Ee tölvu og nota við hana skjá og lyklaborð hér heima við. Ég ætla að lúra á þeirri ákvörðun yfir helgina og ef mér líst enn vel á hana á mánudag fer ég og verð mér úti um svona leikfang.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!