Helgarskýrslan
2008-10-27 17:12 Blog
Í nótt dreymdi mig að einn af fremri jöxlunum losnaði og í ljós kom að mér var að vaxa nýr jaxl. Mikið blóð út um allt og gums. Ég var fegin að vakna en fannst þetta þó allt hið athyglisverðasta.
Ég hafði það gott um helgina. Er að fara í gegnum íbúðina mína og taka til, skipuleggja, flokka, henda og setja í gefa-kassann. Svo horfði ég líka á nokkrar lélegar B-myndir, spjallaði á skype, las reyfara, fór í mótmælagöngu, synti, eldaði mér góðan kvöldmat, lék við kisurnar og í gærkvöldi buðu Katla og Pétur mér í sérdeilis góðan sunnudagsfisk og súkkulaðiköku. Við Katla sátum langt fram eftir yfir rauðvínsflösku og spjalli. Ég er ekki viss um að við höfum leyst neinar lífsgátur en okkur tókst þó að tala úr mér kvíðahnút sem ég var með í maganum.
Ég synti í hádeginu í dag og hef því verið fersk og frísk. Í kvöld mun ég svo elda mat handa systrunum.