Lífsháski
2008-10-28 10:52 Blog
Þrátt fyrir að draumráðningarnar hér að neðan virðist djúpvitrar grunar mig að eins og títt sé í faginu byggi þessir dulspekingar niðurstöður sínar á óyfirnáttúrulegum fróðleik. Ég ætla því að leggja þyngri þraut fyrir ykkur. Í nótt dreymdi mig nefnilega að ég væri að flytja. Hvort það sé staðhæfingum í kommentakerfinu mínu að kenna eða öðru er ekki gott að segja. Hinsvegar ráfaði ég hálf vegalaus um miðbæ Reykjavíkur og í bakporti þar sem ég settist niður og ákvað að opna fartölvuna mína til þess að kíkja á leigulistann reyndi óður stóðhestur sem þar var tjóðraður að ráðast á mig. Ég slapp mjög naumlega. Og ég var skelfilega hrædd. Og rýnið nú draumráðningameistarar og segið mér hvað þetta þýðir!
Annars er það af mér að frétta að í gærkvöldi eldaði ég rósablaðskryddaðar lambakótilettur, sætar kartöflur með engifer og hnetum, cassavarótarmauk, tvenn hrísgrjón með papriku og salat handa systrunum. Svo horfðum við á M eftir Fritz Lang. Myndin kom mér mjög á óvart, hún var eiginlega bara þrusugóð!