UNNUR 2.0
Safnar köttum

Föstudagstepoki

2008-10-31 15:14  Blog

Um helgina eru Hrekkjavökupartí! Og Urður kemur í bæinn! Vei! :)

Í gærkvöldi kom ég heim úr ræktinni, tók til, borðaði kvöldmat og lagðist svo í heitt bað með góða bók. Svo kíkti ég á internetið og komst að því að Logi er staddur í Reykjavík. Hann hvatti mig til að koma og skoða tónleika í Hljómalind þar sem spilað yrði á rafrænan hrossabrest. Og ég rölti mér upp Laugaveginn og komst að því að á meðal flytjenda skrýtihljóðatónverksins var Felipe, mexíkanskur strákur sem ég kynntist á Airwaves og þýska kærastan hans. Þess má geta að þau dvelja einmitt í götunni minni meðan á Íslandsreisunni stendur, búa í gestaíbúð SÍM. Það var gaman að hitta þau aftur og þar sem þetta er lítill heimur rákumst við reyndar enn aftur á þau síðar um kvöldið á Boston.

Ég kom vel tipsí heim eftir að hafa setið með Loga við spjall um lífið og tilveruna og millilanda- versus milliálfusambönd. Ég fleygði mér í rúmið án þess að þrífa af mér maskarann og drunkdæjallaði elskhugann í Mexíkó. Morguninn eftir vaknaði ég svo þegar Nori kom full af barnum heim til sín í San Francisco og drunkdæjallaði mig. Það kom mér í gott skap að hlusta á hana káta og fulla tala um Halloween partí og jóga og mér fannst magnað þetta kosmíska samhengi í því hvernig ég sofnaði og vaknaði.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!