UNNUR 2.0
Safnar köttum

Heitt te

2008-11-05 22:46  Blog

Ég veik heima og það er leiðinlegt. Er með hita og hálsbólgu, hausverk og beinverki. Sef eins og skógarbjörn í híði.

Halloween helgin var góð. Það var gaman að leika við grímuklæddar vinkonur sínar og fara í Halloweenpartí. Okkur tókst að fara í þrjú. Þegar ég er nógu heil heilsu til að tæma myndavélina mína mun ég birta myndir. Ekki það að það séu til góðar myndir af búningunum okkar, myndavélin mín nefnilega varð batteríislaus miðja vegu í gegnum búningahamskiptin síðasta laugardagskvöld. En ég á mögulega von á myndum utan úr bæ til að bæta það upp.

Síðan ég skrifaði síðast hef ég boðið vinkonum í mat og farið í tvö dásamleg matarboð til vinkvenna. Ég hef tekið meira til í geymslunum mínum og haldið áfram að flokka eigur mínar í eigulegar eigur og óeigulegri eigur. Ég hef kynnst nýju fólki og á núna rúmlega 250 nána vini á Facebook.

Svo hef ég líka haft töluverðar áhyggjur af áhrifum kreppunnar á lánin mín. Mín mánaðarlega greiðslubyrði hefur þegar hækkað svívirðilega. Og á meðan ég veit margt þá er ég ekki nema meðalpeningagreind. Íbúðin mín er til leigu frá og með áramótunum og það eykur í raun á áhyggjur mínar af lánamálum. Óvissan um það hversu mikil áhrif verðbólgunnar verði. Þjónustufulltrúinn minn hjálpaði mér að meta verðið sem ég þarf að setja á hana til að standa undir kostnaði en ég veit ekki nema ég ætti að spá í því hvort að það sé einhver óháður aðili sem maður geti fengið ráðgjöf hjá varðandi hvernig sé best að haga málum. Voru settar upp einhverjar svona miðstöðvar eða voru það bara sáluhjálparneyðarmóttökur?

3ja herbergja, 60 fermetra íbúð til leigu frá og með áramótum. Í huggulegu þríbýli í 101 Vesturbær. 2 svefnherbergi, nýuppgert baðherbergi með baðkari, stofa með aukinni lofthæð og kósí bjálkum í lofti, borðstofuhorn og góður eldhúskrókur. Íbúðin er björt og húsið í góðu ástandi. Ný þvottavél, þurrkari og uppþvottavél fylgja auk ísskáps og eldavélar. Sömuleiðis geta ýmis húsgögn fylgt samkvæmt samkomulagi og jafnvel hjól.

Verslanir Bónuss og Krónunnar eru í fimm mínútna göngufæri og neðar í götunni er 10-11 verslun með sólarhringsopnun. Húsinu fylgir góður garður sem gaman er að grilla í á sumrin og bakhlið hússins snýr út að vel hirtum og huggulegum vesturbæjarbakgörðum og breiðum göngustíg. Það svæði er lokað bílaumferð og er því gott leiksvæði fyrir börn.

Verð er 130 þúsund krónur á mánuði, uppgefin til skatts. Innifalið er hiti, rafmagn og hússjóður. Æskilegt er að væntanlegir leigjendur séu reyklausir. Myndir úr íbúðinni er að finna hér: http://www.flickr.com/photos/unnurmaria/sets/72157608462389363/


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!