Spurningar um plássheimtufrekju forrita
2008-11-07 20:37 Blog
Ég þarf að kaupa mér nýja tölvu í stað þeirrar sem dó um daginn. Ég er að reyna að ákveða nákvæmlega hvernig tölvu og hluti af því er að gera upp við mig hveru stóran harðan disk ég þarf að hafa í henni. Mér finnst nefnilega heillandi að kaupa mér mínítölvu og mér finnast solid state diskarnir áhugaverðir. Mig grunar þó að sú samsetning virki ekki alveg fyrir mig því mér finnst gaman að keyra stór og þung forrit og á meðan ég get geymt myndir og annað á flakkara þá virkar það ekki að standa í því að keyra forrit upp af flakkara.
Mér hefur ekkert gengið að finna út úr því hversu stóran harðan disk ég þarf eða hversu mikið vinnsluminni. Einhvernvegin hefði ég búist við því að wikipedia tilgreindi lágmarks búnaðarkröfur forrita en svo er ekki og leit á heimasíðum forritanna er vonlaus. Ég veit hinsvegar að það er fullt af tölvunördum af báðum kynjum sem lesa þessa síðu og sendi því út neyðarkall! :)
Hversu stóran harðan disk/vinnsluminni á ég að miða við ef ég vil geta notað: Photoshop, Nvivo, Audacity, Mindmanager og Endnote?