Helgartepoki
2008-11-10 13:57 Blog
Ég hafði það gott um helgina. Ég var heima síðast föstudagskvöld að ná úr mér veikindunum. Katla kom í heimsókn og við borðuðum kryddaða rækjusúpu og horfðum á vídeó. Eins og vanalega hjálpaði Hafmey mér að elda með því að liggja ofan á matreiðslubókinni og passa upp á að ég færi eftir uppskriftinni.
Laugardeginum eyddi ég svo við heimadútl og um kvöldið fór ég fyrst í ljúffengan mat til Kötlu og Péturs og svo fórum við saman í þrítugsafmælið hans Haffa. Þemað var tíundi áratugurinn og við gerðum okkar besta til að skemmta okkur eins og árið væri 1992.
Sunnudeginum eyddi ég í tiltekt, stúss, kattarknús og lestur. Og ég er farin að hlakka ó svo mikið til 17. desember... :)






