UNNUR 2.0
Safnar köttum

Skapsveiflur ungu stúlkunnar

2008-11-11 21:27  Blog

Skapbarómeterinn hefur sveiflast bæði í hæstu hæðir og niður í dýpsta dal í dag eins og væri ég stödd á Eyjunni hans Múmínpabba umkringd Hattíföttum. Ég vaknaði fáránlega syfjuð og morgunfúl en þegar fyrsti kaffibolli dagsins var byrjaður að seitla út í kerfið var ég eiginlega bara nokkuð kát. Og voðalega eitthvað bleik og skotin. Sem er notaleg tilfinning á þessum síðustu og verstu tímum þegar maður hefur ekki efni á að kaupa sér svo mikið sem hálft skópar til að knýja fram hina daglegu serótónínútspýtingu.

Í hádeginu fór ég á prýðilegan fyrirlestur Hallfríðar Þórarinsdóttur mannfræðings um viðhorf Íslendinga til ýmissa framandi minnihlutahópa. Svo borðaði ég hádegismat með Írisi í Hámu. Og hámaði enn einu sinni í mig fáránlega góða súkkulaðiricekrispíssmáköku og drakk meira kaffi og auðvitað kom ég í dúndurgóðu skapi aftur upp í Hlöðu. Og bætti skapið enn meira með því að hringja í Tölvulistann og panta mér fáránlega töff fartölvu.

Ég hraðaði mér heim rétt fyrir klukkan fimm vegna þess að ég átti von á konu sem ætlaði að koma og skoða íbúðina mína. En hún hringdi og afboðaði sig og fannst íbúðin of dýr. Og sútin flaug í brjóstið inn eins og hnífur. Og ég engdist um af áhyggjum af því að ná ekki að leigja íbúðina út og hvað ef ég fæ nú ekki lífeyrissjóðslánið sem ég treysti á að fá til að greiða niður helvíska námslokalánið sem er að keyra rekstrarkostnaðinn á íbúðinni upp og hvað ef og hvað ef og hvað ef?!? Og svo snökti ég á msn-inu og vældi í Bjarna sem gerði sitt besta til að segja svona svona.

Fyrst mögulegi leigjandinn var ekki á leiðinni fór ég út í Bónus að versla dýran mat. Og það kemur mér alltaf í gott skap að vera afgreidd þar af svörtu afgreiðsludömunni með flétturnar. Hún býður svo glaðlega góðan daginn og brosir svo einlægt og kveður mann meira að segja með virktum. Og er alltaf í jafn glaðlegu skapi. Mér finnst það magnað og afskaplega upplífgandi. Og ég rölti heim og var komin í betra skap, orðin jákvæðari og hlakkaði til að borða góðan kvöldmat. Eða það er að segja, þangað til ég komst að því að ég er enn ekki komin upp á lag með að búa til góðar ferskar sumarrúllur og það voru mikil mistök að setja í þær hráan blaðlauk. Og ég sat eftir mikla fyrirhöfn við að búa til eitthvað sem átti að vera ó svo gott og borðaði frekar óspennandi kvöldmat og það var kalt í íbúðinni minni.

Ég held að skapið sé á leiðinni upp aftur. Ég er með svart te í bolla og dökkt súkkulaði í skál. Og seinna í kvöld á ég deit á skype. Það að þurfa að opna heimabankann á eftir gæti auðvitað sett strik í reikninginn. Enda stefni ég á að fresta því sem lengst. Til dæmis með því að lesa fleiri greinar sem lofsama Eee PC elskuna mína litlu sem í þessum orðum skrifuðum er lögð af stað til mín frá Akureyri.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!