UNNUR 2.0
Safnar köttum

Lambakjöt á diskinn minn!

2008-11-14 11:12  Blog

Mitt helsta markmið næsta mánuðinn er að njóta samvista við vini og fjölskyldu. Í fyrrakvöld bauð ég því Loga og Ágústi í mat en það er afar sjaldgæft að þeir tveir séu á landinu á sama tíma. Ég eldaði lambafíle á rósabeði, cassavarót með wasabi, kartöflubáta og spínatsalat með trönuberjum. Strákarnir komu með rauðvín. Í eftirmat bauð ég svo upp á Royalbúðing til að styrkja þjóðerniskenndina á þessum síðustu og verstu tímum.

Lambakjöt

Lambakjöt

Rauđvín

Kisurnar fengu catnip til hátíðabrigða og við hlógum að þeim þar sem þær rúlluðu malandi um gólfið.

Catnip

Catnip

Ég er ekki lengur stressuð yfir fjármálum. Í gærkvöldi fékk ég lausn allra mála. Það er gott að eiga góða foreldra.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!