Sunnudagur án jaxla
2008-11-16 20:23 Blog
Endajaxlatakan gekk feykilega vel. Svo feykilega vel að í dag hef ég getað borðað vandræðalaust og finn lítið fyrir verkjum. Ég fagnaði því með því að fara og tölvuhangast á kaffihúsi með Loga og borða crèpe með hrísgrjónum, rækjum, sveppum og rjómaosti, drekka guinness og gæða mér á bananasplitti í eftirrétt! Og mér fannst ég afar lánsöm stúlka þar sem ég sat á kaffihúsi eins og fín frú með litlu smátölvuna mína og sleikti súkkulaðisósu úr munnvikunum.
Helena Hafþórsdóttir heimsótti mig og kisurnar í gær og þurfti líka að sleikja ís úr munnvikunum. Hún er afskaplega sæt snúlla.
