UNNUR 2.0
Safnar köttum

Íbúđ til leigu - lćkkađ verđ

2008-11-24 14:41  Blog

3ja herbergja, tæplega 60 fermetra íbúð til leigu frá og með áramótum. Tilvalin íbúð fyrir par eða samleigjendur. Tíu mínútna gangur í HÍ.

Íbúðin er huggulegu þríbýli í 101 Vesturbær. 2 svefnherbergi, nýuppgert baðherbergi með góðu baðkari, stofa með aukinni lofthæð og kósí bjálkum í lofti, borðstofuhorn og góður eldhúskrókur. Íbúðin er björt og húsið í góðu ástandi. Ný þvottavél, þurrkari og uppþvottavél fylgja auk ísskáps og eldavélar. Sömuleiðis geta ýmis húsgögn og búsáhöld fylgt samkvæmt samkomulagi og jafnvel hjól.

Verslanir Bónuss og Krónunnar eru í fimm mínútna göngufæri og neðar í götunni er 10-11 verslun með sólarhringsopnun. Húsinu fylgir góður garður sem gaman er að grilla í á sumrin og bakhlið hússins snýr út að vel hirtum og huggulegum vesturbæjarbakgörðum og breiðum göngustíg. Það svæði er lokað bílaumferð og er því gott leiksvæði fyrir börn.

Verð er 110 þúsund krónur á mánuði, uppgefið til skatts og því húsaleigubótaumsæknarhæft. Innifalið er hiti og hússjóður. Æskilegt er að væntanlegir leigjendur séu reyklausir, gæludýr eru hinsvegar velkomin.

Myndir úr íbúðinni er að finna hér: http://www.flickr.com/photos/unnurmaria/sets/72157608462389363/

Hafið samband við Unni í síma 691 0374 eða í gegnum netfangið unnur@klaki.net


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!