Halló heimur!
2008-12-23 00:16 Blog
Ætli það sé ekki kominn tími til að láta vita af sér. Ég er í heilu lagi og komin til Mexíkóborgar. Ferðalagið var langt, var á ferðinni í því sem næst 24 tíma og tímamismunurinn er heilir sex tímar. Fyrstu dagana hér gerði ég því lítið annað en að leggja mig, rölta um hverfið í matarleit, sötra bjór og láta knúsa mig. Ég er hinsvegar öll að koma til núna.
Ég er búin rölta í gegnum gamla miðbæinn, sjá ráðhústorgið og dómkirkjunnar, sem bæði eru reist á rústum Astekahofs, búin að skoða litlar skrýtnar búðir og sjá handahófskennda hluti. Ég er búin að neita að smakka þurrkaðar engisprettur með salti, chili og sítrónu en hafði mjög gaman af því að fara á markaðinn og sitja þar á á litlum bás og borða ostrur, rækjur og ýmsar tegundir af skelfisk. Borgin er öðruvísi en ég átti von á, vinalegri og ekki það mannhaf sem maður gæti haldið að hún væri. Ég er búin að hitta nokkra vini Antonios, á morgun borðum við með mömmu hans og kærastanum hennar.
Síminn minn er ekki að virka. Ég held að millistykkið sem eigi að láta hleðslutækið tala við mexíkóskar innstungur sé gallað. Ég er of löt til að finna út úr því á nóinu en mun hafa augun opin fyrir raftækjaverslunum.
Það er skrýtið að vera farin frá Íslandi. Ég er enn með hugannn við vinnu og frágang íbúðar og finnst þetta allt pínulítið óraunverulegt. Mýslingarnir fengu gott heimili en ég sakna þeirra. Hérna er samt lítill hundur sem ég get klappað og sagt frá því hvað kisurnar mínar eru sætar.
Ég setti myndir á Flickr síðuna mína: http://flickr.com/photos/unnurmaria/