Sykursćtar kveđjur frá Mexíkóborg
2008-12-29 21:40 Blog
Namm! Ég er að borða risastóran súkkulaðihúðaðan sykurpúða á meðan ég les blogg, tagga myndir, svara tölvupósti og velti ýmsum grundvallaratriðum tilverunnar fyrir mér. Eins og til dæmis því hvort það sé tilgerðarlegt að skipta yfir í engilsaxnesku á fésbókinni til að auðvelda það að halda tengslin við þessa fáu enskumælandi vini mína. Kona hefði haldið að komin á fertugsaldurinn væru svona spursmál ekki neitt sem héldi fyrir manni vöku. Eins heldur það fyrir mér vöku hvort ég ætti að skemmta njerðinum í mér við það að setja upp lítið Unnurskoðarmexíkóborg-blogg. Og þá á hvaða tungumáli.
Ég hlóð myndum upp á Flickr áðan.Tjékkitt!
