UNNUR 2.0
Safnar köttum

Af konum og hundum í Mexíkóborg

2009-03-20 04:46  Blog

Þegar ég las Glerhjálminn komst ég aðeins yfir nokkrar blaðsíður í einu. Ekki vegna þess að ég lesi hægt eða vegna þess að Glerhjálmurinn sé sérstaklega torskilin bók. Nei, ég las hægt vegna þess að mörgum áratugum eftir að Silvía Plath fríkaði út hittir texti hennar þunglyndar stúlkur beint í hjartastað. Þegar söguhetjan gekk stræti eftir stræti og mundi ekki hvað hún hét eða hversvegna fólk hafði fyrir því að byggja hús fékk ég íllt í magann og þurfti hvað eftir annað að leggja bókina frá mér og anda samkvæmt ráðleggingum Landspítalans.

Sá hluti þar sem alteregó Plath fékk meðhöndlun á geðsjúkrahúsi var mun auðveldari aflesturs. Ekki vegna þess að söguhetjan hefði fengið góða meðferð, heldur einfaldlega vegna þess að verandi nútímastúlka leið mér sjálfkrafa betur við það að vita að hún hefði fengið inni í kerfinu. Tannhjólin voru farin að snúast að nýju.

Í óskyldum fréttum ákvað ég að byrja að blogga að nýju með því að taka það fram að mér hefur sjaldan liðið jafn vel og hér í Mexíkóborg. Og í dag leið mér eins og ég væri orðin alvöru borgarbúi. Þegar við Logi fórum út með Matitu í seinni göngutúrinn rákumst við á vini míns fyrrverandi. Þeir voru hressir, létu mig hafa flyer úr bunkanum sem þeir voru að reyna að koma út og sögðust vona að ég kæmist í partíið sem þeir eru að halda á morgun til styrktar dýraathvarfi. Ég kynnti Loga og Matitu og spurði frétta frá því við höfðum hittst síðast.

Þetta var fyrsta skiptið sem ég talaði við þessa stráka sem ég hef þó margoft hangið með. Ég lærði nefnilega, sjáið þið til, heilmikla spænsku á flandrinu mínu um daginn.

Göngutúrinn enduðum við í garðinum þar sem Matita hljóp um og lék sér við hina hundana. Hún hafði ekki nægilegt þor til þess að taka fullan þátt í eltingarleiknum en móðurhjartað mitt fylltist stolti við það að sjá hversu mikið hún hefur fullorðnast á síðasta mánuði.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!